Posted on

Leikfélag Húsavíkur hyggst setja upp leikritið Bót og betrun

Stjórn LH hefur ákveðið, í samráði við Maríu Sigurðardóttur sem ráðin hefur verið sem leikstjóri á yfirstandandi leikári, að setja upp leikritið Bót og betrun eftir enska leikskáldið Michael Cooney.

Leikstjórinn, María Sigurðardóttir á langan feril að baki.  Hún var leihhússtjóri Leikfélags Akureyrar 2008-2011 og hefur unnið við leikstjórn um árabil bæði í atvinnuleikhúsi og áhugaleikhúsi sem og við kvikmyndir.

María er Húsvíkingum og Þingeyingum sannarlega að góðu kunn, því hún hefur leikstýrt Leikfélagi Húsavíkur, Leikdeild Eflingar, Framhaldsskóla Húsavíkur, Borgarhólsskóla og Tónlistarskóla Húsavíkur.

Þetta mun vera í sjötta skipti sem María leikstýrir hjá Leikfélagi Húsavíkur. Fyrri uppfærslur hennar hjá LH eru Ofurefli (86-87), Gaukshreiðrið (91-92), Tobacco Road (94-95) og Þjóni í súpunni (03-04) og Tveir tvöfaldir (05-06). Síðast nefnda stykkið er eftir höfundinn Ray Cooney, en svo vill til að hann er faðir Michael Cooney, höfundar að Bót og betrun sem nú er á dagsrkárnni.

Leikritið nefnist á frummálinu Cash and delivery og er breskur farsi sem farið hefur víða og fengið mjög góða dóma. Það fjallar um mann sem grípur til þess ráðs að svíkja fé út úr kerfinu með tilhæfulausum bótakröfum eftir að hann missir vinnuna. Dag einn berja örlögin að dyrum og fer að trosna úr lygavefnum. Þá hyggst okkar maður gera bót og betrun en þarf á aðstoð að halda við að verja leyndarmálið bæði fyrir stjórnvöldum og konu sinni. Hann rekst þó á að þegar kerfið er annars vegar getur reynst erfiðara að losna af bótum heldur en að komast á þær.