BARPAR

Leikfélag Húsavíkur sýnir nú leikritið Barpar eftir Jim Cartwright í leikstjórn Völu Fannell.

Leikritið Barpar gerist á bar í smábæ á Norður-Englandi. Þessi ónefndi bar sem einkum er frægur fyrir það „að annað hvort kemur fólk í pörum eða það fer í pörum“. Áhorfendur fá tækifæri til að sjá og upplifa eina kvöldstund í lífi hjónanna sem eiga og reka staðinn en einnig koma við sögu fjöldi gesta á öllum aldri. Hjónin virðast við fyrstu sín hata hvort annað – hún daðrar skammlaust við alla gestina og drekkur út gróðann á meðan hann reynir að hafa stjórn á hlutunum. Skrautlegir og óvæntir gestir setja strik í reikninginn og hafa mikil áhrif á þau hjónin. Þegar kemur að lokun barsins um kvöldið bresta allar stíflur með óumflýjanlegu uppgjöri hjónanna á skuggalegum harmleik fortíðarinnar. Það er svo sannarlega spilað á allan tilfinningaskalann í þessari leiksýningu.